| Landsmót íslenskra kvennakóra, Hafnarfirði |
|
|
|
|
Laugardagurinn var tekinn snemma enda margt spennandi framundan sem enginn vildi missa af. Eftir hollan og staðgóðan morgunverð flykktust konur í vinnuhópa og hófu að æfa undir stjórn valinkunnra tónlistarmanna þeirra Elínar Óskar Óskarsdóttur, Björgvins Þ. Valdimarssonar, Gabríelu Thész og Edit Molnar. Óskar Einarsson, stjórnandi Gospelkórs Reykjavíkur, fór á milli hópanna og kynnti gospelsöng sem vakti mikla kátínu og var mikið dillað og dansað meðan á því stóð. Á laugardeginum voru haldnir tónleikar í Víðistaðakirkju þar sem hver kór söng tvö lög. Tónleikarnir gengu mjög vel og var allt skipulag á þeim til fyrirmyndar. Sungið var fyrir fullum sal af fólki og ljúfir tónar fylltu vit allra sem í kirkjunni voru þennan dag. Um kvöldið var hátíðarkvöldverður þar sem mótsgestum var skemmt með ýmsum uppákomum, s.s. tónlistaratriðum frá krökkum úr Flensborgarskóla, skörulegum ræðumönnum og happdrætti svo eitthvað sé nefnt. Dansinn tók svo öll völd þegar líða tók á kvöldið og er óhætt að segja að þessar 400 konur sem þarna voru staddar þyrftu enga dansherra – hér dönsuðu allir við alla langt fram á nótt. Á sunnudeginum var svo haldið áfram að æfa í hópum og einnig voru sameiginlegu lögin æfð. Seinni part dags voru tónleikar þar sem hver vinnuhópur flutti það sem hafði verið unnið með um helgina. Fjöldi gesta kom á tónleikana og tókust þeir afar vel. Hrafnhildur Blomsterberg sleit svo vel heppnuðu móti og kvöddum við kórkonur, sem margar áttu langa leið fyrir höndum, með kaffi og meðlæti. Það voru ákaflega þreyttar en glaðar konur sem brettu upp ermar og fóru að taka til og ganga frá eftir tónleikana. Eiginmenn létu ekki sitt eftir liggja frekar en fyrri daginn og áður en sól var sest þennan sunndag gátu hafnfirskar kórkonur loks haldið til síns heima, glaðar og stoltar af kóramótinu sínu. Helgi sem seint mun hverfa úr minnum Kvennakórs Hafnarfjarðar! |





6. Landsmót íslenskra kvennakóra var haldið með pompi og prakt í Hafnarfirði helgina 29. apríl til 1. maí. Segja má að mótið hafi verið með glæsilegasta móti og mikið um dýrðir. Alls tóku 15 kórar þátt í mótinu, flestir utan af landi og einn frá Danmörku. Mótið var sett á föstudagskvöld þar sem farið var yfir skipulag og framkvæmd yfir ilmandi súpu og brauði. Eftir það var haldið út í óvissuna og má þar segja að áhangendaklúbbur Kvennakórs Hafnarfjarðar hafi komið sannarlega á óvart þegar prúðbúnir eiginmenn, klæddir í kjól og hvítt, biðu 400 kvenna í Hellisgerði með kokteil og harmonikkutónlist. Vakti þetta að vonum mikla lukku allra kórkvenna og ekki síst hjá Hafnarfjarðarkórnum. Síðan var haldið af stað í kynningarferð um Hafnarfjörðinn undir stjórn Jónatans Garðarssonar. Aftur glöddu áhangendaklúbbur Kvennakórs Hafnarfjarðar okkur í Garðaholti með fögrum söng og söngvatni og enn á ný þegar komið var aftur í hús og farið yfir sameiginlegu lögin