Markmið og stefna PDF Prenta E-mail

Kvennakór Hafnarfjarðar var stofnaður árið 1995 og hefur kórinn verið í stöðugri þróun og tekið miklum þroska.  Markmið kórsins er að syngja metnaðarfulla tónlist þar sem tekist er á við allt litróf söngs og laga.  Kórinn býður upp á félagsskap þar sem samvinna og góður liðsandi er hafður í fyrirrúmi.  Kappkostað er við að bjóða nýjar kórkonur velkomnar og láta þeim líða sem hluta af heildinni frá byrjun.

Nýjar konur er teknar inn í upphafi haustannar og í upphafi vorannar.  Auglýsingar eru settar í bæjarblöðin um tímasetningar á raddprófunum umsækjenda.  Nýjar konur fá afhenta möppu með nauðsynlegum upplýsingum um kórstarfið ásamt því sem kórkona mun kynna hana fyrir starfinu.

Stefna kórsins er að skipulag vetrarins liggi fyrir í upphafi annar.  Stefnt verður að því að konur séu búnar að fá í hendur tónleikalög í upphafi annar.  Æfingar svo og aukaæfingar liggja fyrir í upphafi annar og reynt er að víkja sem minnst út af því plani.  Tveir langir laugardagar eru haldnir fyrir jól og tveir langir eftir jól ásamt því að farið er í æfingabúðir í byrjun febrúar. Standa þær yfir frá föstudegi og fram á sunnudag.  Markmið kórsins er að allir langir laugardagar ásamt tímasetningu á æfingabúðum liggi fyrir í lok vorannar fyrir komandi starfsár.

Kórinn heldur jólatónleika og vortónleika á hverju starfsári. Kórinn tekur einnig þátt í syngjandi jólum í byrjun desember ásamt því að syngja í jólaþorpinu, á Hrafnistu og við messu svo og við fleiri viðburði ef þess er óskað.

Á vorin eru haldnir vortónleikar ásamt því að farið verður þriðja hvert ár með tónleika út á land.  Þriðja hvert ár er stefnan að kórinn haldi erlendis annað hvort í söngferð eða á eitthvert kóramót.  Landsmót kvennakóra er á þriggja ára fresti og Kvennakórinn mun leggja leið sína á það þriðja hvert ár.  Næstkomandi vor verður Landsmót haldið á Höfn í Hornafirði og mun undirbúningur fyrir það hefjast strax í haust með fjáröflun og auðvitað æfingum.

Kórinn heldur úti öflugri fjáröflunarstarfsemi.  Þar má helst nefna kökubasar, sala á kertum og kaffi svo og annað sem fjáröflunarnefnd kórsins lætur sér detta í hug.

 
valid xhtml valid css