| Upplýsingar fyrir nýjar konur |
|
|
|
|
Verið velkomnar í Kvennakór Hafnarfjarðar. Kórstjóri Kvennakórs Hafnarfjarðar er Erna Guðmundsdóttir. Píanóleikari kórsins er Antonía Hevesi en hún kemur aðallega til okkar á æfingar fyrir tónleika. Nótnahöfðingi er Sigrún Kristinsdóttir í 1. sópran og sér hún um allar nótur. Ef ykkur vantar nótur af einhverjum lögum þá þarf að tala við hana. Kórinn á allar nótur sem konur fá og eru konur beðnar að skila þeim aftur þegar búið er að nota þær. Heilmiklir fjármunir fara í nótur og fjölföldun þeirra og því viljum við reyna að halda þeim kostnaði í algjöru lágmarki. Krafist er góðrar mætingar á allar æfingar kórsins. Í 6. gr. 1 mgr. í lögum Kvennakórs Hafnarfjarðar stendur “Konur skulu mæta vel og stundvíslega á allar æfingar. Mæti kona ekki á þrjár æfingar í röð, án gildrar ástæðu, er stjórn heimilt að víkja viðkomandi úr kórnum.” Við erum góður kór með mikinn metnað og góð mæting er undirstaðan undir það. Ef kona getur ekki mætt á æfingu vegna veikinda eða annarar gildrar ástæðu á hún að láta raddformann sinnar raddar vita um fjarveru. Ef kona veit fyrirfram um æfingar sem hún mun ekki getað mætt á t.d. vegna vinnu þá að láta vita strax.
Raddformenn eru: Sópran 1: Elísabet Kristinsdóttir sími 565 2172 691 2172 Sópran 2: Sif Eiðsdóttir sími 565 2412 899 3162 Alt 1: Guðrún Guðmundsdóttir sími 565 3409 660 1555 Rakel Ingvarsdóttir sími 555 2720 565 4595 848 2538 Alt 2: Sigrún Óskarsdóttir sími 565 0072 699 0346
Kórgjöldin eru 15.000 og kjólagjöld 2.000 fyrir hvora önn. Kórgjöld eiga að greiðast sem fyrst og eigi síðar en 15. október á haustönn og 15. febrúar á vorönn.
Leggja á kórgjöldin inn á reikning kvennakórsins sem er:
1101-26-31882, kt. 600697-2189
Leggja á kjólagjöldin inn á reikning kjólasjóðs sem er:
1101-05-762711, kt. 600697-2189
Konur verða að merkja vel greiðsluna og að senda kvittun í tölvupósti til Guðrúnar, gjaldkera This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it Konur eru beðnar um að stilla ilmvatnsnotkun á æfingum í algjört lágmark. Margar konur eru með ofnæmi fyrir sterkri lykt og því erfitt fyrir þær að syngja í þeim aðstæðum. Á tónleikum er algjörlega bannað að vera með sterkan ilm hvort sem það er ilmvatn eða mikið hársprey.
Kórinn er með kaffisjóð sem konur greiða 100 kr. fyrir hverja æfingu. Þessum kaffisjóð er ætlað að standa undir kaffi, tei og gosi sem boðið er uppá á æfingum. Einnig er þessi sjóður notaður í mat á löngum laugardegi svo og í æfingarbúðum. Tveir langir laugardagar eru nú á vorönn og eru konur beðnar að taka sérstaklega eftir þeim á æfingarplaninu og taka þá frá. Þetta eru mjög mikilvægar æfingar þar sem þær eru lengri en venjulegar æfingar og hafa reynst okkur vel til að æfa prógrammið. Ákveðið var að stytta æfingarnar úr því að vera frá 10 – 17 og í það að vera 9 – 15 og hafa í staðinn tvo daga á hvorri önn. Með því að hafa langa laugardaga er verið að koma í veg fyrir margar aukaæfingar fyrir tónleika og hefur það tekist vel. Forsenda þess er þó að það sé vel mætt á æfingarnar og þarf ekki að taka það fram að það er skyldumæting á þessar æfingar svo og að konur séu á allri æfingunni.
Eftir áramót fer kórinn í æfingarbúðir, dagsetning æfingabúða 2011 verður tilkynnt síðar. Æfingabúðir skiptast á milli fyrstu og annarar helgar í febrúar. Lagt er af stað á föstudegi eftir vinnu og komið til baka seinni partinn á sunnudegi. Það er mikið sungið í þessum búðum og skemmta konur sér gífurlega vel. Góður matur er borðaður á laugardagskvöldinu og gleðskapur í framhaldi af því. Af þeim sökum byrjar æfing aðeins seinna á sunnudeginum eða kl 10. Æfingarbúðirnar eru niðurgreiddar af kórnum þar sem það er ætlast til að konur komi í æfingarbúðir.
Aðventutónleikar þetta árið eru fyrirhugaðir 25. nóv 2010 í Viðistaðakirkju.
Kvennakórinn er með fjáröflun þannig að hægt sé að gera eitthvað skemmtilegt saman án þess að það bugi konur fjárhagslega. Stefna kórsins er að fara 3ja hvert ár á landsmótið, 3ja hvert ár erlendis og 3ja hvert ár í ferð innanlands. Kórinn mun taka þátt í Landsmóti kvennakóra sem fram fer 29. apríl - 1. maí 2011. Föst fjáröflun kórsins eru 5 kökubasarar sem haldnir eru yfir árið (2 fyrir áramót og 3 eftir áramót) og er hægt að sjá tímasetningar á þeim á planinu. Konur baka köku sem hægt er að selja fyrir 2500 kr. Einnig hefur verið möguleiki á að borga 2500 kr. ef konur sjá sér ekki fært að koma með köku á basarinn. Greiðsla fer inná fjáröflunarreikning kórsins sem er: 1101-26-38822 kt. 600697-2189.
Konur verða að merkja greiðsluna vel og senda kvittun til Guðrúnar á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it Undanfarin misseri hefur fjáröflunin verið mjög fjölbreytt. Kórinn er með sérstakan fjáröflunarreikning sem konur leggja inná. Konur eru beðnar um að passa sérstaklega vel að rugla ekki saman reikningum kórsins og láta fjáröflunarpeninga inná fjáröflunarreikning og kórgjöld inná almenna reikninginn (sem gefinn var upp fyrst hér að ofan). Sömuleiðis eru konur beðnar um að senda Guðrúnu Antonsdóttur tölvupóst með upplýsingum um greiðslu inná þennan reikning þannig að auðveldara sé að rekja greiðslur og gera upp. Mjög mikilvægt er að leggja inn fyrir hverri fjáröflun en ekki eina upphæð fyrir t.d. kerti og kökubasar
Kórinn er með heimasíðu www.kvennakorinn.org og geta konur fengið þar ýmsar upplýsingar. Hægt er að sækja þangað æfingaplan og einnig eru upplýsingar um reikninga kórsins þar. Undir áhugaverðar síður er bæði að finna tengla á tónfræði á netinu ásamt því að hægt er að fá nótnaforrit sem konur geta spilað inn sína rödd og hlustað. Konur eru einnig hvattar til að vera duglegar að taka myndir og láta taka myndir af okkur og láta Sigrúnu Óskars hafa annað hvort á diski eða að senda í tölvupósti This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it Myndir eru settar inn á heimasíðuna okkar og einnig geymdar í sérstakri möppu.
Í stjórn kórsins eru 5 konur, en þær eru nú: Elísabet Kristinsdóttir, formaður Guðrún Antonsdóttir, gjaldkeri Rakel Ingvarsdóttir, ritari Arnfríður Arnardóttir, meðstjórnandi Lilja M. Finnbogadóttir, meðstjórnandi.
Hægt er að nálgast félagslög kórsins á vefnum okkar. Þar er einnig hægt að sjá hverjar eru starfandi í nefndum. Áhangendaklúbbur Kvennakórs Hafnarfjarðar er starfræktur sérstaklega í kringum tónleika og ferðir. Það eru karlarnir okkar sem skipa þennan klúbb og eru auðvitað nýir karlmenn hjartanlega velkomnir. Fundir þeirra eru auglýstir í gegnum okkur. Konur eru hvattar til að spyrja ef einhverjar spurningar vakna.
Með kveðju Stjórnin. |
| Síðast breytt ( Miðvikudagur, 25. ágúst 2010 kl. 17:50 ) |




