Félagslög Kvennakórs Hafnarfjarðar PDF Prenta E-mail

 

 

1. grein.

 Félagið heitir Kvennakór Hafnarfjarðar, stofnað 26. apríl 1995.  Heimili félagsins og varnarþing er í Hafnarfirði.

 

 

2. grein.

1. mgr.

Í stjórn kórsins skulu vera 5 konur, formaður, gjaldkeri, ritari og tveir meðstjórnendur.

2. mgr.

Stjórnarkjör skal fara fram á aðalfundi og skal hver stjórnarmeðlimur kosinn til tveggja ára í fyrstu og síðan til eins árs.

 3. mgr.

Kjósa skal á hverju ári um einn til þrjá stjórnarmeðlimi, hvort sem við á, þannig að aldrei sé skipt um alla stjórnarmeðlimi í einu.

4. mgr.

Hver stjórnarmeðlimur skal ekki sitja lengur en 4 ár í einu.

 5. mgr.

Á aðalfundi skal kjósa tvo endurskoðendur.

6. mgr.

Hægt er að fara fram á að atkvæðagreiðslur séu leynilegar, en til þess þarf samþykki þriðjungs þeirra félaga sem á fundinum sitja.

 

3. grein.

Aðalfund skal halda að vori, eigi síðar en 1. júní ár hvert. Til aðalfundar skal boðað með 7 daga fyrirvara og skal hreinn meirihluti fundarmanna ráða úrslitum mála.   Fjárhagsár verði frá 1. maí – 30. apríl.

 

 

4. grein.

1. mgr.

Félagsgjöld skulu ákveðin á aðalfundi, fyrir eitt ár í senn.

2. mgr.

Félagsgjöld skal innheimta í tvennu lagi.  Fyrri hluti greiðist fyrir 15. október og seinni hluti greiðist fyrir 15. febrúar.  Félagsgjöld verða ekki endurgreidd.

 

 

5. grein.

 1. mgr.

Gjaldkeri sér um að innheimta félagsgjöld og ráðstafa peningum í samráði við stjórn.

 

 

6. grein.

 1. mgr.

Konur skulu mæta vel og stundvíslega á allar æfingar. Mæti kona ekki á þrjár æfingar í röð, án gildandi ástæðu, er stjórn heimilt að víkja viðkomandi úr kórnum.

2. mgr.

Sé kórfélagi í fríi lengur en 1 starfsár er litið svo á að hún sé hætt.

 

 

 7. grein.

 Aðeins er hægt að breyta lögum kórsins á aðalfundi og ber stjórn að senda félagskonum framkomnar breytingartillögur með fundarboði.

 

 

8. grein.

 1. mgr.

Aðalfundur felur stjórn félagsins að ráða kórstjóra og gera við hann starfssamning.

 2. mgr.

Kórstjóri sér um alla faglega þjálfun kórsins. Hann ræður vali á undirleikara og aukaþjálfara í samráði við stjórn.

3. mgr.

Stjórn ræður faglegan aðila til að sjá um inntöku nýrra radda í kórinn í upphafi starfsársins er þörf krefur.

 

 

 9. grein.

1. mgr.

Allar stærri ákvarðanir sem varða kórstarfið skal bera undir kórinn í atkvæðagreiðslu sem fram fer á félagsfundi, sem þá er kallaður saman.  Hreinn meirihluti fundarmanna ræður úrslitum mála. Allar ákvarðanir um fjárútlát yfir 500.000,-- kr. skal meirihluti félagskvenna ákveða á félagsfundi sem kallaður er saman.

 2. mgr.

Atkvæðisrétt á aðalfundi skulu eingöngu hafa skuldlausir félagar kórsins.

3. mgr.

Sjóðir kórsins skulu ávaxtaðir á áhættulausum innistæðureikningum eða sjóðsbókum. Ekki er heimilt að fjárfesta í verðbréfum eða hlutdeildarskírteinum. Gjaldkera ber að skoða kjör á reikningum kórsins árlega og meta hverju sinni í samráði við stjórn, hvort ástæða sé til að færa viðskipti kórsins til annars viðskiptabanka.

Síðast breytt á aðalfundi 24. september 2009.

 

 

 10. grein.

 Á aðalfundi skal fara fram kosning í nefndir, þ.e. fjáröflunarnefnd, ferðanefnd, tónleikanefnd, uppstillingarnefnd, kaffinefnd og kórbúninganefnd.

Síðast breytt ( Laugardagur, 03. október 2009  kl. 22:42 )
 
valid xhtml valid css