| Fjáröflun |
|
|
|
|
Kvennakórinn heldur úti öflugri fjáröflun sem gerir kórnum kleift að fara í söngferðir innanlands sem erlendis. Á næsta starfsári er ferðinni heitið á Hornafjörð á 7. landsmót kvennakóra. Fastar fjáraflanir sem kórinn er með eru nokkrar. Fjáröflun er lögð inn á fjáröflunarreikning Kvennakórsins. kt. 600697-2189 og reikningsnúmer er 1101-26-38822 Muna að láta skýringu fylgja hvað er verið að borga og hver er að borga ef ekki greitt af eigin reikningi. Einnig er alveg brilliant að senda Guðrúnu gjaldkera kvittunina á tölvupósti og er hægt að gera það þegar verið er að borga (valmöguleiki í heimabanka). Tölvupóstfang Guðrúnar er This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it Kvennakórinn er með hluta fjáröflunarinnar eyrnamerkta. Oftast er því þannig farið að eitthvert lágmark er sett þannig að konur verða að selja x margar einingar af vörunni sem eru þá lagðar inn á reikninginn hér að ofan. Ef kona selur umfram þetta lágmark þá fer það inná reikning sem er ætlaður fyrir eyrnamerkingu, reikningur hér fyrir neðan. Þá leggur kona inn ágóðann af umfram seldum einingum á eyrnarmerkingarreikning en kostnaðinn setur hún inná fjáröflunarreikninginn sem er hér fyrir ofan. Reikningsnúmerið á eyrnamerkingarreikningi er kt. 600697-2189 og reikningsnúmer er 1101-26-421681 Konur verða að leggja inn undir kennitölu þannig að hægt sé með auðveldum hætti að rekja hver á hvaða upphæð. Hægt er að greiða sig út úr allri fjáröflun ef kona getur ekki eða velur að taka ekki þátt í henni. Þá greiðir kona ágóðann sem samsvarar lágmarki sem sett er fyrir hverja fjáröflun. Fjáröflunin er hugsuð til að létta konum að vera með í því sem kórinn er að gera en ekki að hún sé birgði á konum. |





Reikningsnúmer fyrir kórgjöldin er: 1101-26-031882 (senda kvittun í tölvupósti til Guðrúnar gjaldkera)