Erna Guðmundsdóttir PDF Prenta E-mail
Erna útskrifaðist með tónmenntakennarapróf frá Tónlistaskólanum í Reykjavík 1983.  Hún starfaði á árunum 1983-1984 sem tónmenntakennari við Grundaskóla á Akranesi.  Hún fó til Bandaríkjana í framhaldsnám og útskrifaðist með Masterspróf frá Indiana University Bloomington.  Hún var kórstjóri Barnakórs Bústaðakirkju í tvö ár og hefur frá árinu 1990 verið kórstjóri og söngkennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.  Hefur verið söngkennari við Tónlistarskólann í Hafnarfirði frá ca. 1992.  Hún hefur komið að raddþjálfun margra kóra.
Erna hefur haldið marga einsöngstónleika ásamt því að hafa sungið í kór.  Hún söng m.a. á Sumartónleikum í Skálholti, í Gerðubergi, Norræna húsinu, Hafnarborg, Ísafirði, Akranesi ,Vík í Mýrdal og fleira. 
Var dagskrárgerðarmaður við Ríkisútvarpið eitt ár og var með morgunþætti í beinni útsendingu á Rás 1.
 
valid xhtml valid css