Áhangendaklúbbur Kvennakórs Hafnarfjarðar PDF Prenta E-mail

Starfræktur hefur verið svokallaður áhangendaklúbbur Kvennakórs Hafnarfjarðar en það eru eiginmenn kórkvenna sem eru meðlimir í þessum ágæta klúbbi.  Klúbburinn hefur staðið fyrir hinum ýmsu uppákomum og skipulagt skemmtikvöld fyrir konurnar.  Klúbburinn er starfræktur aðallega í kringum tónleika þar sem karlarnir hafa oft komið konum sínum á óvart eftir tónleika.  Klúbburinn er svo upp á sitt besta í ferðum kórsins og þá sér í lagi ferðum sem farnar eru út fyrir landssteinana. 

Þetta er hinn skemmtilegasti félagsskapur þar sem karlar okkar hafa náð að kynnast betur. 

 
valid xhtml valid css