Kvennakórinn í Íslandi í bítið PDF Prenta E-mail
Sunnudagur, 09. október 2005  kl. 16:05

Kvennkórinn mun flykkjast upp í Stöð 2 á miðvikudagsmorgun kl. 6:15.  Tekið verður viðtal við Hrafnhildi og Friðbjörgu þar sem ræddir verða 10 ára afmælistónleikar okkar.  Einnig verður rædd Barcelonaferðin svo og landsmótið sem við héldum í vor.  Kvennakórinn mun syngja tvö lög, annað í framhaldi af viðtalinu og eitt í lok þáttar.

Tvennir tónleikar verða haldnir nú í byrjun nóvember þar sem fjölbreytt og skemmtileg dagskrá verður flutt.  Fyrri tónleikarnir verða í Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 10. nóvember kl. 20:00 og þeir seinni í Víðistaðakirkju, laugardaginn 12. nóvember kl. 16:00. Forsala aðgöngumiða er hjá kórfélögum og í Súfistanum, Máli og menningu og Strandgötu 9, Hafnarfirði.

Um kvöldið þann 12. nóvember verður svo haldinn fagnaður í Lionssalnum í Kópavogi.  Þar ætlar Kvennakórinn ásamt áhangendaklúbbi sínum og fyrrum kórfélögum skemmta sér fram á rauða nótt.

 
Langur laugardagur PDF Prenta E-mail
Mánudagur, 19. september 2005  kl. 23:03
Á laugardaginn kemur (24. september) verður langur laugardagur í Seltjarnarneskirkju.  Þá æfa konur frá kl. 10 um morguninn og til klukkan 17-18.  Á slíkum æfingum gerast hlutirnir og verðum við uppfullar af söng og textum eftir æfinguna.  Kaffisjóður bíður uppá kaffi og með því ásamt því að komið er með hádegismat (yfirleitt gómsætar pizzur).
 
Kvennakór Hafnarfjarðar 10 ára PDF Prenta E-mail
Þriðjudagur, 05. apríl 2005  kl. 22:57

Þann 25. apríl næstkomandi mun Kvennakór Hafnarfjarðar fagna sínu 10 ára afmæli.  Kórinn var formlega stofnaður þennan dag en hafði verið starfandi frá því í byrjun árs 1995.  Það voru nokkrar framtakssamar konur sem fengu til liðs við sig Halldór Óskarsson, kórstjórnanda og töldu að nú væri tími til kominn að í Hafnarfirði væri starfræktur kvennakór.  Í raddprufur mætti fjöldi kvenna og var strax ljóst að áhuga hafnfirskra kvenna vantaði ekki. 

Lesa áfram...
 
<< Start < Prev 11 12 13 Next > End >>

Page 13 of 13
valid xhtml valid css