Langar þig að syngja? PDF Prenta E-mail
Mánudagur, 31. ágúst 2009  kl. 20:05

 

 
Vetrarstarf að hefjast ! PDF Prenta E-mail
Mánudagur, 17. ágúst 2009  kl. 23:06

Nú förum við að hittast eftir sumarfrí - alltaf tilhlökkun þegar við kórsysturnar hittumst eftir langt hlé. Framundan verður skemmtilegur vetur (að vanda), en aðventutónleikarnir verða með suður-amerísku þema. Kórkonur fá sent með pósti nánar hvenær æfingar byrja, en það verður í byrjun september.

Eins og á hverju hausti þá tökum við á móti nýjum kórkonum í kórinn. Skráning nýrra kórfélaga fer fram í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, miðvikudaginn 2. sept. kl: 18:00 - 19:00 og fimmtudaginn 3. sept. kl: 18:30 - 19:30.

Hittumst hressar, Sigrún Óskars

 

 
Vortónleikar PDF Prenta E-mail
Sunnudagur, 19. apríl 2009  kl. 22:23

Vortónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar verða haldnir þriðjudaginn 28. apríl kl. 20:00 í Hásölum. Dagskráin er einstaklega fjölbreytt að þessu sinni og má þar m.a. nefna nýtt verk, Stökur, eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Tónverkasjóður Gígjunnar fékk Hildigunni til að semja verkið fyrir kvennakóra landsins.

Nú ætlum við að syngja um vorið og birtuna, lagavalið kemur úr hinum ýmsu áttum.  Íslenskar og erlendar vorvísur, madrigalar, kirkjulegverk og söngleikjalög svo eitthvað sé nefnt. Það munu því allir finna eitthvað við sitt hæfi.

Miðaverð er 1500 kr. og verður miðasala við innganginn og hjá kórkonum.

Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarðar er Erna Guðmundsdóttir og undirleikari er Antonia Hevesi.

 

 
Kórastefna á Mývatni 4.- 7. Júní 2009. PDF Prenta E-mail
Sunnudagur, 21. júní 2009  kl. 23:19

Snemma að morgni  4. Júní héldu galvaskar konur úr kvennakór Hafnarfjarðar norður á Mývatn á Kórastefnu 2009. Þetta er 7. kórastefnan sem haldin er á Mývatni og er listrænn stjórnandi hennar Margrét Bóasdóttir en hún á heiðurinn af þessu öllu.

Á leiðinni var m.a. prjónað og haldnar kóræfingar. Þar sem við stoppuðum sungum við fyrir ferðalanga, nema á Akureyri en þar fórum við í Europris og keyptum okkur þessa flottu hatta með flugnaneti.

Tekið var á móti okkur á Mývatni með súpu og brauði í Skjólbrekku,

 

Lesa áfram...
 
Ný síða PDF Prenta E-mail
Sunnudagur, 19. apríl 2009  kl. 21:08
Vefsíða kvennakórsins hefur legið niðri í vetur. Nú hefur verið unnin bragarbót á því og ný síða orðin að veruleika.
 
More Articles...
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 2 of 13
valid xhtml valid css