Framhaldsaðalfundur Kvennakórsins PDF Prenta E-mail
Sunnudagur, 09. september 2007  kl. 16:48

Framhaldsaðalfundur Kvennakórsins verður haldinn miðvikudaginn 19. september í Víðistaðakirkju kl. 19 á undan æfingu. 

Tekin verða fyrir ýmis mál s.s. kostning í nefndir og breyting laga sem stjórnin mun leggja fram.  Konur fá sent heim fundarboð og ásamt því verða tillögur að breytingum kórsins. 

Ef einhverjar konur eru með tillögur að breytingum á lögum þá þurfa slíkar breytingar að berast á þriðjudag 11. september til að berast með fundarboði. 

 
Æfingaplan PDF Prenta E-mail
Sunnudagur, 09. september 2007  kl. 16:48

Nú er æfingarplanið að mestu komið og hægt er að sjá það hér á síðunni.  Einnig er hægt að ná í það á Excel skjali ef þið viljið prenta það út.  Á sömu síðu má finna lista yfir jólalögin sem við munum æfa í vetur. 

 
Æfingar hefjast PDF Prenta E-mail
Mánudagur, 03. september 2007  kl. 16:45

Æfingar hjá Kvennakór Hafnarfjarðar hefjast mánudaginn 3. september kl. 20 og verður fyrsta æfing vetrarins haldin í Gúttó. 

Margt hefur gerst hjá kórnum frá því í vor, nýr kórstjóri og nýtt æfingarhúsnæði.  Famundan eru æfingar fyrir jólatónleika ásamt því að farið verður að undirbúa ferð sem kórinn mun fara í lok apríl til Hornafjarðar en þar verður Landsmót íslenskra kvennakóra haldið að þessu sinni.

 
Inntaka nýrra kvenna PDF Prenta E-mail
Sunnudagur, 09. september 2007  kl. 16:46

Inntaka nýrra kvenna fór fram á þriðjudagskvöld og miðvikudagskvöld í síðustu viku. 

Prófanir gengu vel og bjóðum við nýjar konur velkomnar  til starfa. Söngelskar konur sem ekki komust á raddprófun þessa tvo daga geta haft samband við Helgu M. Sveinsdóttur í síma 897 4821 eða á netfangi This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 
Húsnæðismálin PDF Prenta E-mail
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007  kl. 16:43

Nú er að koma mynd á vetrarstarfið og skipulag vetrarins að verða tilbúið.  Kvennakórinn hefur fengið húsnæði á mánudögum í Gúttó við Suðurgötu.  Kórinn mun hins vegar vera á miðvikudögum í Víðistaðakirkju.

 
More Articles...
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 10 of 13
valid xhtml valid css