Inntaka nýrra kvenna í kórinn PDF Prenta E-mail
Mánudagur, 07. janúar 2008  kl. 17:06

Inntaka nýrra kvenna í Kvennakórinn stendur nú yfir. Kórinn getur bætt við sig nokkrum röddum í allar raddir. Raddprófun verður næst í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar miðvikudaginn 9. janúar kl. 19:30 - 20:30.  Einnig verður raddprófað í næstu viku bæði á mánudag og fimmtudag kl. 19:30 og verða þær einnig í Tónlistarskólanum. 

Kórinn æfir á mánudagskvöldum kl. 20 - 20:30 og 1. og 3. fimmtudag í mánuði á sama tíma.  Æft er í stofu 3 í Tónlistarskólanum.

 
Hrun síðunnar PDF Prenta E-mail
Sunnudagur, 06. janúar 2008  kl. 17:04

Síðan er nú búin að vera í ólagi síðustu daga þar sem tæknileg vandamál gerðu það að verkum að síðan hrundi. 

Unnið er að lagfæringu og að koma henni í fyrra lag.

 
Væntanlegar breytingar á æfingartíma kórsins PDF Prenta E-mail
Laugardagur, 13. október 2007  kl. 16:51

Vegna kórstjóraskipta geta orðið breytingar á æfingartíma kórsins.  Við biðjum konur að vera þolinmóðar gagnvart þessum breytingum þar sem það fylgir því alltaf visst álag að skipta um kórstóra. 

Til að byrja með göngum við út frá því að vera hvern mánudag í stað annars hvers mánudags en hins vegar verðum við annan hvern miðvikudag í staðinn.  Stefnan er svo að finna nýtt æfingarhúsnæði fyrir kórinn á fimmtudögum og sleppa miðvikudögum.

 
Framhaldsaðalfundur Gígjunnar PDF Prenta E-mail
Laugardagur, 13. október 2007  kl. 16:52

Framhaldsaðalfundur Gígjunnar verður haldinn laugardaginn 20. október kl. 16-18 í söngskólanum Domus Vox Laugarvegi 116, Reykjavík. Tekin verða fyrir ýmis mál og rætt um landsmótið sem haldið verður á Höfn nú í apríl næstkomandi.

Allar konur hvattar til að mæta. www.gigjan.is

 
Langur laugardagur PDF Prenta E-mail
Mánudagur, 17. september 2007  kl. 16:50

Langur laugardagur verður á laugardaginn.  Þá byrjar æfingin kl. 9 og er til kl. 15.  Matur verður í boði kórsins og þurfa konur einungis að mæta með nótur, söngröddina og góða skapið. 

Um kvöldið verður svo fyrsta teiti vetrarins haldið og mun kórinn nota tækifærið til að kveðja Hrafnhildi og þakka henni fyrir góð störf með kórnum. 

 
More Articles...
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 9 of 13
valid xhtml valid css