|
Laugardagur, 26. janúar 2008 kl. 17:13 |
|
Þessa dagana stendur kjólanefnd í ströngu vegna endurnýjunar á kórkjólum. Tillögur hafa verið fengnar um nýja kjóla og verður leitað eftir tilboðum í saum og hönnun. Það mun því skýrast fljótlega hvernig við verðum klæddar á landsmóti í vor. |
|
|
Laugardagur, 26. janúar 2008 kl. 17:11 |
|
Æfingin sem átti að vera á mánudaginn fellur niður vegna veikinda Ernu. Næsta æfing er á fimmtudaginn næsta. |
|
Laugardagur, 12. júlí 2008 kl. 17:09 |
|
Kvennakórinn mun fara í æfingarbúðir aðra helgina í febrúar. Lagt verður af stað föstudaginn 8. febrúar eftir vinnu og komið heim aftur seinnipart sunnudags. Æfingarbúðir er árlegur viðburður hjá kórnum og er þetta sambland skemmtunar og æfinga þó auðvitað séu æfingarnar í fyrirrúmi. Það er ekki hægt að segja annað en að konur læri mikið á þessari helgi og er hún á við margar æfingar. |
|
|
Föstudagur, 25. janúar 2008 kl. 17:10 |
|
Kökubasar var haldinn á Bóndadaginn í Firðinum. Kökubasarinn gekk vel að vanda og var sala góð. Hnallþórur af öllum stærðum og gerðum streymdu inn og var borðið hlaðið af gómsætum kökum. Kökubasarinn er mikilvægur hlekkur í fjáröflun kórsins og mun kórinn nota ágóða hans til söngferðar til Hafnar í Hornafirði nú í vor en Landsmót íslenskra kvennakóra er haldið þar í 7. sinn. |
|
Mánudagur, 07. janúar 2008 kl. 17:07 |
|
Nú eru æfingar hafnar hjá kórnum og var fyrsta æfingin mánudagskvöldið 7. janúar kl. 20. Það var mikil gleði í konum þegar þær hittust aftur og mikil stemning fyrir vorinu. Næsta stefna er á æfingarbúðir aðra helgina í febrúar sem verða að Laugum í Sælingsdal. Í vor eru á dagskrá tvennir tónleikar í apríl þeir fyrri fimmtudaginn 17. apríl og seinni laugardaginn 19. apríl. Í lok mánaðarins verður svo farið á Landsmót íslenskra kvennakóra sem haldið er á Höfn í Hornafirði. Þetta er heil helgi þar sem konur munu fá að svala söngþorsta sínum og það er ekki að efa að sú ferð mun lifa í minni kórsins lengi. Í júní verður 100 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar og mun kórinn taka þátt í sameiginlegum tónleikum sem haldnir verða í tilefni þess þann 1. júní sem er afmælisdagur bæjarins og upphaf Bjartra daga. |
|
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>
|
|
Page 8 of 13 |