|
Fimmtudagur, 31. janúar 2008 kl. 17:19 |
|
Nú líður að æfingarbúðum Kvennakórs Hafnarfjarðar. Farið verður aðra helgina í febrúar dagana 8. - 10. febrúar að Laugum í Sælingsdal. Lagt verður af stað frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar á föstudeginum kl. 18 og komið heim á sunnudegi í eftirmiðdaginn. Mikið fjör hefur verið í þessum ferðum undanfarin ár og er þetta orðin árvisst tilhlökkunarefni í hugum margra kvenna. Sungið er af öllum lífs og sálarkröftum frá föstudagskvöldi og frá á sunnudag þó svo að segja megi að laugardagurinn sé aðalvinnudagurinn. Á laugardagskvöldinu er svo kvöldverður og skemmtun. Í ár er það sópraninn sem mun standa fyrir skemmtilegheitunum í ferðinni og ætti það ekki að vefjast fyrir þeim eins skemmtilegar og þær nú eru. |
|
|
Fimmtudagur, 31. janúar 2008 kl. 17:18 |
|
Örlítið hefur borið á því að konur gleymi að láta raddformenn vita þegar þær komast ekki á æfingar. Það hefur verið sterk hefð fyrir því og almenn vinnuregla kórsins að konur hringi í raddformann sinnar raddar til að tilkynna forföll. Hægt er að leita upplýsinga hér á vefnum um það hver er raddformaður í hverri rödd. Konur eru hvattar til að virða þessa reglu. |
|
Fimmtudagur, 31. janúar 2008 kl. 17:16 |
|
Almennur félagsfundur Kvennakórsins verður haldinn fimmtudaginn 31. janúar kl. 19 í Tónlistarskólanum. Ýmislegt er á dagskránni sem nauðsynlegt er að ræða þannig að konur séu vel inní málefnum kórsins. Ofarlega á dagskrá er Landsmótið sem farið verður í vor til Hafnar í Hornafirði. Allar konur eru hvattar til að mæta. |
|
|
Fimmtudagur, 31. janúar 2008 kl. 17:17 |
|
Heilmikið hefur bæst við kórinn nú í janúar og eru bæði nýjar konur að koma inn eftir að hafa komið í raddprufu og "gamlar" eftir frí. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá allar þessar konur bætast við hópinn. Við bjóðum nýjar sem gamlar hjartanlega velkomnar og hlökkum til að vera með þeim í vetur. |
|
Laugardagur, 26. janúar 2008 kl. 17:14 |
|
Kvennakórinn mun fara á Höfn í Hornafirði 25. - 27. apríl á Landsmót íslenskra kvennakóra. Mótið er haldið í 7. sinn og eru þessi mót þekkt fyrir að vera mikil gleði fyrir kórkonur. Unnið er í hópum þar sem tekin eru fyrir tiltekin verkefni og er það mikil og skemmtileg tilbreyting á hið hefðbundna kórstarf. Tónleikar eru á laugardeginum þar sem kórarnir koma hver og einn með sitt framlag og er það mjög gaman að sjá hvernig og hvað aðrir kórar eru að gera. Að sjálfsögðu eru skemmtilegheitin ekki látin sitja eftir heima og eru konur í kvennakórum á Íslandi ekki þekktar fyrir það að kunna ekki að skemmta sér. Landsmót íslenskra kvennakóra þjappar kvennakórum saman og er vettvangur þar sem konur geta kynnst því sem aðrir kórar eru að gera. Því er ekki spurning að við erum þátttakendur í Landsmóti. Endilega farið inná vef Gígjunnar www.gigjan.is og þar getið þið séð allt um Landsmótið. |
|
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>
|
|
Page 7 of 13 |