Lokaspretturinn PDF Prenta E-mail
Mánudagur, 31. mars 2008  kl. 17:26

Kvennakórinn er á fullu að æfa núna fyrir tónleikana sem haldnir verða í Víðistaðakirkju 19. apríl.  Á næstu æfingum verður Antonía Hevesí með okkur og þá munu undirleikslögin smella saman. 

Næstu æfingar verða fimmtudaginn 3. apríl,

langur laugardagur 5. apríl frá kl. 9-15, mánudagurinn 7. apríl,

væntanlega aukaæfing fimmtudaginn 10. apríl,

mánudaginn 14. apríl í Víðistaðakirkju,

fimmtudaginn 17. apríl tónleikar á Hrafnistu,

laugardaginn19. apríl tónleikar í Víðistaðakirkju mæting kl. 12.00.

31. mars

 
Breyting á tónleikahaldi PDF Prenta E-mail
Föstudagur, 21. mars 2008  kl. 17:24

Ákveðið hefur verið að kórinn haldi eina tónleika að þessu sinni.  Tónleikarnir verða laugardaginn 19. apríl kl. 16 í Víðistaðakirkju. 

Efnisskráin er fjölbreytt og er mun kórinn bæði syngja innlend sem erlend lög.  Af tilefni 100 ára afmælis Hafnarfjarðar mun kórinn hafa á efnisskrá sinni nokkur lög eftir Friðrik Bjarnason en einnig mun kórinn syngja lög eftir aðra íslenska höfunda. 

Erlend verk eru einnig á efnisskránni og má þar helst nefna kirkjuleg verk, madrikala og söngleikjalög bæði úr Sound of music og America.  Kvennakórinn lofar skemmtilegum tónleikum að vanda

 
Kristalsnaglaþjalir PDF Prenta E-mail
Miðvikudagur, 06. febrúar 2008  kl. 17:21

Fjáröflun Kvennakórsins er nú á fullu.  Að þessu sinni er verið að selja kristalsnaglaþjalir.  Naglaþjalirnar eru einar þær bestu sem hægt er að nota og duga þær von úr viti.  Hægt er að fá staf sinn eða stjörnumerki grafið í þjölina.  Þjölin kostar 1500 kr. og fást hjá kórkonum.

 
Ófært vestur PDF Prenta E-mail
Laugardagur, 16. febrúar 2008  kl. 17:23

Helgina 8. - 10. febrúar var ráðgert að Kvennakórinn færi vestur að Sælingsdal í æfingarbúðir.  Vegna óveðurs sem gekk yfir landið þá var ferðinni aflýst og því urðu konur af ferðalagi vestur.  En konur dóu ekki ráðalausar og fluttu því æfingarbúðir suður í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.  Æft var alla helgina og var frábær vinna hjá hópnum.  Á laugardeginum var æft frá kl. 9 til klukkan 4:30.  Miklu var áorkað og voru konur glaðar í lok dags.  Hópur þeirra hressustu hittust svo um kvöldið í teiti sem boðið var til og var hlegið og sungið fram yfir miðnætti.  Klukkan 10 næsta morgun mættu konur glaðvaskar í Tónlistarskólann á æfingu og var þá æft til kl. 15:30. 

Eftir helgina voru konur ánægðar og stoltar yfir þeirri vinnu sem farið hafði fram þó að nokkur leiði hafi verið yfir því að komast ekki vestur.  En konur voru sammála um að þeim mun meiri tilhlökkun væri til ferðarinnar austur í vor.  Myndir koma fljótlega.

 
Félagsfundur PDF Prenta E-mail
Þriðjudagur, 05. febrúar 2008  kl. 17:20

Stjórnin kallaði saman félagsfund fimmtudagskvöldið 29. janúar kl. 19.  Fundarefni var starf vetrarins.  Rætt var um ferðina austur á Hornafjörð í vor og voru konur almennt farið að hlakka mikið til þess að komast á landsmót.  Einnig var rætt um 100 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar og aðkomu okkar að þeim viðburði. 

Kórinn mun syngja á afmælisdag bæjarins sem er 1. júní ásamt fleiri kórum bæjarins.  Aðrir málaflokkar voru fjáröflun, mætingar og æfingaplan sem framundan er.

 
More Articles...
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 6 of 13
valid xhtml valid css