Aðalfundur Kvennakórsins PDF Prenta E-mail
Miðvikudagur, 07. maí 2008  kl. 17:32

Aðalfundur Kvennakórs Hafnarfjarðar verður haldinn miðvikudaginn 21. maí kl. 20.  Ekki er enn búið að ákveða hvar hann verður haldinn en fundarboð verða send út eftir helgi.  Konur eru hvattar til að mæta þar sem ýmis málefni sem varða næsta ár verða rædd og mun þar eflaust bera á góma kórbúningamál svo og ferðalög næsta árs. 

Rétt er að geta þess að ef konur vilja leggja fram lagabreytingar þá verða þær að berast til stjórnar eigi síðar en um helgina ef þær eiga að fara út með fundarboðum.

 
Vortónleikar 19. apríl í Víðistaðakirkju PDF Prenta E-mail
Laugardagur, 12. apríl 2008  kl. 17:31

Kvennakórinn mun halda sína árlegu vortónleika í Víðistaðakirkju laugardaginn 19. apríl.  Efnisskráin verður fjölbreytt að vanda og lofar kórinn góðri skemmtun.  Í tilefni 100 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar syngur kórinn nokkur lög eftir Hafnarfjarðarskáldið Friðrik Bjarnason,  en þar má fyrst nefna Þú hýri Hafnarfjörður sem tónleikarnir bera nafn sitt eftir.  Einnig mun kórin syngja lögin Fyrr var oft í koti kátt, Abbalabba lá og Sigling.  Önnur íslensk sönglög eru einnig á dagskránni ásamt erlendum lögum.  Kórinn mun svo ljúka tónleikunum  með vel þekktum söngleikjalögum. 

Lesa áfram...
 
Langur laugardagur PDF Prenta E-mail
Laugardagur, 05. apríl 2008  kl. 17:29

Æft var í Tónlistarskólanum lungað úr laugardeginum.  Kvennakórinn mætti kl. 9 og byrjað var á því að hita vel upp.  Sönggleðin lét ekki á sér standa og konur voru kampakátar þegar haldið var fram á Torg og sungið yfir prógrammið.  Tónar kórsins hljómuðu um alla ganga og fengu nemendur og starfsfólk Tónlistarskólans  forsmekkinn af dagskrá tónleika kórsins.  Framundan eru æfingar á mánudag og fimmtudag og mun kórinn halda áfram að æfa dagskránna.

 
Æfing í Víðstaðakirkju PDF Prenta E-mail
Laugardagur, 12. apríl 2008  kl. 17:30

Æfing verður mánudaginn 13. apríl kl. 19 í Víðstaðakirkju.  Antónía mun koma og spila með okkur. 

Þessi æfing verður einskonar generalprufa þar sem þetta er síðasta æfingin fyrir tónleika að undanskildum fimmtudeginum en þá fer kórinn á Hrafnistu og syngur fyrir heimilsfólk þar. 

 
Langur laugardagur á morgun PDF Prenta E-mail
Föstudagur, 04. apríl 2008  kl. 17:27

Kvennakórinn mun nú sameinast í söng á löngum laugardegi sem mun vera síðasta langa æfing vetrarins.  Prógrammið er langt komið og er fínstilling eftir.  Farin hefur verið sú leið þennan vetur að setja inn fleiri langa laugardaga en verið hafa síðastliðin ár.  Þetta hefur verið gert í því skyni að draga úr aukaæfingum fyrir tónleika og er kappkostað við að standast þau plön.

 
More Articles...
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 5 of 13
valid xhtml valid css