|
Laugardagur, 20. september 2008 kl. 00:00 |
|
Langur laugardagur verður haldinn 11. október og er mikilvægt að kórkonur taki þann dag frá í æfingar. Mætt verður klukkan 9:30 og æft. Hádegisverður kemur um 12 leytið og síðan verður hætt um 14. Þessar æfingar hafa alltaf þótt mjög mikilvægur hlekkur í starfi kórsins. Við lærum gífurlega mikið á þessum æfingum og oft næst heilmikill samhljómur í kórinn eftir þessar æfingar. Ekki er ólíklegt að konur bregði sé síðan í betri fötin um kvöldið og geri sér glatt kvöld eftir glaðan dag. |
|
|
Laugardagur, 20. september 2008 kl. 00:00 |
|
Ekki er góð vísa of oft kveðinn eða svo segir máltækið. Lykillinn að góðu starfi er góð mæting. Í fyrra náðum við að starfa eftir plani vetrarins og ekki var neitt um aukaæfingar. Markmið okkar er að standa okku ekki ver nú í ár en áður. Hver æfing er mikilvæg og því er von okkar að konur virði tíma hver annarrar með því að mæta á allar þær æfingar sem þær geta. Á þær æfingar sem konur sjá sér ekki fært að mæta á eru þær vinsamlegast beðnar að tilkynna það til síns raddformanns. |
|
Hafnarfjörður 100 ára undirbúningur |
|
|
|
|
Föstudagur, 09. maí 2008 kl. 17:35 |
|
Æfingarnar verða sem hér segir: Mánudagur 19. maí kl. 20.00 í Víðistaðakirkju með píanói. Mánudagur 26. maí kl. 20.00 í Íþróttahúsinu á Ásvöllum með píanói. Laugardagur 31. maí kl. 10.30 í Íþróttahúsinu á Ásvöllum með hljómsveit. Sunnudagur 1. júní kl. 10.00. Hér gæti orðið rennsli á tónleikunum (Ákvörðun hljómsveitarstjóra). Kirkjukórar undanskildir. Tónleikarnir verða svo kl. 16.30, ekki kl. 17.00, vegna beinnar útsendingar á Rás 1 á Ásvöllum!!! Blönduðu kórarnir syngja tvö verk með hljómsveitinni: Úr útsæ rísa Íslands fjöll eftir Pál Ísólfsson og Rís, Íslandsfáni, sem er lokaþáttur Úr Alþingishátíðarkantötu eftir Pál Ísólfsson. Í lok tónleikanna syngja svo allir kórarnir Þú hýri Hafnarfjörður með hljómsveitinni. Íslensk tónverkamiðstöð hefur útbúið hefti sérstaklega fyrir afmælishátíðina af Rís Íslandsfáni. |
|
Lesa áfram...
|
|
|
Velheppnað Landsmót á Höfn |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 07. maí 2008 kl. 00:00 |
|

Kvennakórinn fór á Höfn í Hornafirði nú í lok apríl á Landsmót íslenskra kvennakóra sem þar var haldið en alls 13 kvennakórar af landinu sóttu mótið. Þetta var einstaklega vel heppnuð ferð og komu glaðar söngkonur heim seint á sunnudagskvöldið 27. apríl. Lagt var af stað frá Tónlistarskólanum kl. 10 á föstudagsmorgun og dagurinn notaður í að keyra til Hafnar en eins og fyrr sá Þormar okkar um keyrsluna. Við renndum í hlað kl. 17:00 og voru konur mjög glaðar að sjá Gistiheimilið Hvamm sem kórkonur komu sér vel fyrir á yfir helgina. Um kvöldið var mótið sett og farið í ævintýralega óvissuferð undir jökul. Karlakór Kvennakórs Hornarfjarðar hafði undirbúið komu okkar frábærlega með varðeldi og ísilögðum kerrum fullum af guðaveigum sem konur létu ekki bjóða sér tvisvar. Undan tindrandi berginu töfraðist svo syngjandi karlakór sem vakti mikla kátínu hjá konum. |
|
Lesa áfram...
|
|
Miðvikudagur, 07. maí 2008 kl. 17:34 |
|
Fimmtudaginn 17. apríl söng kórinn á Hrafnistu helstu lög efnisskrár tónleikanna. Tekið var vel á móti kórnum og var ekki annað að sjá en að heimilisfólk hefði gaman af. Byrjað var á að syngja lögin eftir Hafnarfjarðarskáldið Friðrik Bjarnason og var fólk hvatt til að taka undir. Ekki lét fólk á sér standa sérstaklega þegar Fyrr var oft í koti kátt var sungið. Eftir að kórinn hafði tæmt efnisskránna voru sungin nokkur aukalög. Í lokin gaf kórinn heimilisfólki eintak af disknum Stiklur og vonar kórinn að fólk geti átt ánægjulegar stundir með okkur á fóninum. Kórinn þáði kaffi og konfekt fyrir söngin og hlakkar til að fá að syngja aftur fyrir heimamenn. |
|
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>
|
|
Page 4 of 13 |