Jólatónleikar Kvennakórsins PDF Prenta E-mail
Miðvikudagur, 15. október 2008  kl. 00:00

Farið er að hugsa fyrir jólatónleikum kórsins.  Fyrirhugaðir tónleikar eru fimmtudaginn 11. desember kl. 20 og verður Kvennakór Hafnarfjarðar einn með tónleika að þessu sinni. 

Við munum fá til okkar hörpuleikara sem mun aðstoða okkur við flutning á verkum sem fyrirhugað er að flytja.

 
Framhaldsaðalfundur Kvennakórs Hafnarfjarðar PDF Prenta E-mail
Laugardagur, 20. september 2008  kl. 00:00

Framhaldsaðalfundur verður haldinn fimmtudaginn 25. september kl. 20 í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.  Kjósa þarf í nefndir kórsins og hefur uppstillingarnefnd verið á fullu síðustu viku í því að finna kandídata í nefndir.  Öllum er frjálst að bjóða sig fram og hvetjum við konur sem hafa áhuga á að starf kórsins gangi sem best að bjóða sig fram. 

Í uppstillingarnefnd eru þær Ragna Jóna og Sif.  Á fundinum verða einnig rædd mál vetrarins og væntanlega verður eitthvað rætt um væntanlega utanlandsferð.  Það verður því mjög spennandi að mæta á fundinn og heyra það nýjasta.

 
Inntökupróf gengu vel PDF Prenta E-mail
Laugardagur, 20. september 2008  kl. 00:00

Kvennakórinn auglýsti eftir konum í kórinn nú í haust.  

Um 20 konur komu bæði nýjar konur og nýjar-gamlar.  Það er ekki hægt að segja annað en hópurinn sem kom hafi verið mjög góður og fengu allar konur inngöngu í kórinn.  Við bjóðum allar konur hjartanlega velkomnar í frábæran félagsskap.

 
Nótur sendar út í næstu viku PDF Prenta E-mail
Laugardagur, 20. september 2008  kl. 00:00
Kvennakórskonur ætla nú í næstu viku að byrja að senda út til kvenna lögin sem við erum byrjaðar að syngja. Hver rödd fær sína línu senda þannig að konur geta hlustað á sína rödd og öðlast þannig öryggi. Einnig verða raddæfingar haldnar nú á næstunni þar sem kórnum verður skipt upp í raddir og æft þannig að hluta til.
 
Æfingar hafnar PDF Prenta E-mail
Laugardagur, 20. september 2008  kl. 00:00

Kvennakórinn er farinn að æfa aftur. 

Æfingar eru í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar alla mánudaga klukkan 20 og annan hvern fimmtudag á sama tíma.  Miklir fagnaðarfundir voru á fyrstu æfingu þegar konur hittust aftur eftir sumarfrí.  Einnig sáust á gömul andlit sem voru að snúa aftur eftir mislangt frí.  Það yljaði hjartarætur "gömlu" kvennanna. 

Ekki er annað hægt að segja en það hafi glatt kórkonur hversu margar nýjar konur höfðu áhuga á að starfa með okkur og bjóðum við konur velkomnar í kórinn og í góðan félagsskap.

 
More Articles...
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 3 of 13
valid xhtml valid css