Allir vindar blunda PDF Prenta E-mail
Fimmtudagur, 26. apríl 2012  kl. 18:58

  Vortónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar

Laugardaginn  12. maí mun Kvennakór Hafnarfjarðar syngja inn sumarið með tónleikum sem bera yfirskriftina Allir vindar blunda.  Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt, allt frá klassískum perlum tónlistarsögunnar til íslenskrar dægurtónlistar.   Ferðast verður á vængjum ástarinnar frá Bandaríkjunum til meginlands Evrópu, staldrað við í Frakklandi og hlustað á franska kvikmyndatónlist og að lokum verður takturinn sleginn að hætti Gyðinga og Afríkubúa.

Kvennakór Hafnarfjarðar er skipaður tæplega 50 konum og er stjórnandi kórsins Erna Guðmundsdóttir.  Píanóleikari er Antonia Hevesi en auk hennar leika með kórnum Dean Ferrell á bassa, Jón Björgvinsson á slagverk og Tristan Willems á klarinett.  Þrír ungir einsöngsnemendur úr Tólistarskóla Hafnarfjarðar, þær Dagný Björk Gísladóttir, Elfa Erlendsdóttir og Sandra Lind Þorsteinsdóttir koma einnig fram með kórnum.

Tónleikarnir verða haldnir í Hásölum við Strandgötu laugardaginn 12. maí kl. 16:00.  Miðaverð er 2.000 krónur og fer miðasala fram hjá kórkonum og við innganginn.  Boðið er upp á kaffi og konfekt í hléi.

 
Kvennakór Hafnarfjarðar getur bætt við sig konum PDF Prenta E-mail
Sunnudagur, 28. ágúst 2011  kl. 00:00

 

Kvennakór Hafnarfjarðar getur bætt við sig konum í allar raddir.

Raddprófun fer fram í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fimmtudaginn 1. september kl. 19.

Framundan eru skemmtileg og metnaðarfull verkefni.  Í desember verða árlegir jólatónleikar kórsins haldnir.

Nánari upplýsingar:

Hulda Björnsdóttir í síma 849 4153 eða Arnfríður Arnardóttir í síma 856 6559 eða í gegnum netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 
Nú hefst fjörið PDF Prenta E-mail
Mánudagur, 29. ágúst 2011  kl. 09:12

 

Æfingar Kvennakórs Hafnarfjarðar hefjast fimmtudaginn 1. september kl. 19:30 í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.  Kórkonur koma nú endurnærðar til æfinga eftir langt og gott sumarfrí.  Erna mun kynna dagskrá vetrarins, í henni leynast ýmsir gullmolar sem við munum flytja á jólatónleikum í byrjun desember.

Nýjar konur eru velkomnar í kórinn, raddprófun fer fram kl. 19 þann 1. september.

 
valid xhtml valid css